top of page
Search
  • Writer's pictureEva Magnúsdóttir

Mýtan um hina feimnu konu

Á jafnréttisþingi sem haldið var 25. nóvember síðastliðin kom fram að hlutur kvenna sem viðmæl­end­ur fjöl­miðla hef­ur lítið breyst frá því að málið var skoðað fyr­ir 15 árum. Á þinginu var kynnt ný úttekt sem nær yfir tímabilið 1. sept­em­ber 2014 – 31. ág­úst 2015. Karl­ar voru um 70% viðmæl­enda í frétt­um RÚV, Stöðvar 2 og Bylgj­unn­ar á móti um 30% kvenna. Þessu er hægt að breyta með markvissum aðgerðum. Stjórnendur fjölmiðla bera þarna mikla ábyrgð, ábyrgð sem snýr að því að einungis karllæg sjónarmið fái að njóta sín. Konur hafa þar af leiðandi ekki jafn mikil áhrif og karlar í íslensku samfélagi.

Í fjölmiðlahópi sem starfaði á ráðstefnunni fór fram umræða sem snerist að einhverju leyti um það hversu langlíf mýtan um hina feimnu konu sem ekki þorir að koma fram í fjölmiðlum væri þegar verið er að ræða alvörumál. Samt var sagt frá listum kvenna hjá FKA og fleiri stöðum þar sem konur hafa lýst því yfir að þær væru tilbúnar til að koma fram í fjölmiðlum. Samt er staðan svona. Stjórnendur þurfa bara að ákveða að tala við jafnmargar konur og karla.

sjá nánar frétt mbl.is

5 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page