top of page
Search
Writer's pictureEva Magnúsdóttir

Einn heimur - eitt land

Ef við höfum ekki öll skilið orðin samfélagsleg ábyrgð þá gerum við það sannanlega núna. Við höfum séð að við getum haft áhrif og borið ábyrgð. Í litlu samfélagi eins og Íslandi hefur COVID-19 veiran þegar haft gríðarleg áhrif á daglegt líf okkar allra. Hún mun á endanum hafa mikil fjárhagsleg áhrif á heimili og fyrirtæki þar sem það helst í hendur og fjöldi fólks mun missa lífsviðurværi sitt tímabundið. Í hremmingum stöndum við saman. Við erum góð í því að takast á við krísur, betri en á „friðartímum“.

Allt frá ríkisstjórninni, því frábæra teymi frá ríkislögreglustjóra, landlækni og sóttvarnarlækni til stjórnarandstöðu, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Það eru allir að gera sitt, taka ábyrgð og hafa áhrif. Enginn verður skilinn eftir og í dag blasir við önnur mynd en áður og argaþras hversdagsins er gleymt. Við vinnum saman.


Við vitum að fyrirtæki í ferðaþjónustu munu eiga erfitt næstu mánuðina þar sem ekki er ljóst hvenær fólk getur farið að ferðast frjálst á ný. Mörg fyrirtækjanna treysta á sumarið og eiga ekki feita sjóði. Mig langar að höfða til samfélagslegrar ábyrgðar okkar Íslendinga, allavega þeirra sem halda störfum að krísu lokinni. Sameinumst áfram eins og við gerum í krísuástandi. Hjálpum þessum fyrirtækjum, skoðum okkar stórkostlega land með ferðaþjónustufyrirtækjum um allt land, förum á jöklana og fjöllin. Borðum á veitingastöðum í höfuðborginni og á landsbyggðinni og gistum á hótelum og heimagistingum. Víða hafa verið byggðir upp stórkostlegar nýjungar í afþreyingu. Skoðum hella og menningarminjar sem landar okkar hafa lagt tíma og fé í að byggja upp og förum á kajak og skíði. Og þið sem ekki hafið skoðað landið ykkar notið tækifærið og finnið til ábyrgðar í leiðinni. Landar okkar sem missa vinnuna fá þá aftur störf. Við erum ein þjóð í einu landi, munum það, stórkostlegu landi. Því meira sem ég ferðast um Ísland því meiri lotningu fyllist ég og því meira elska ég landið okkar. Ef gjaldeyririnn skilar sér ekki getum við kannski minnkað skellinn.


En það er ekki nóg með að við sem búum í Atlantshafinu vinnum saman heldur líka allur heimurinn. Aldrei fyrr man ég eftir því að eitt málefni hafi sameinað svo allan heiminn. Við getum þetta þegar ógn sem COVID-19 veiran er steðjar að. Afhverju getum við ekki staðið saman þegar hætta steðjar að öllum heiminum vegna loftslagsvár? Af hverju getum við á venjulegum degi horft upp á stríð og fátækt, kvennakúgun, barnaþrælkun og fleiri hörmungar sem gerast á hverjum degi? Tökum höndum saman um þau málefni líka, látum ekki staðar numið. Tökum ábyrgð, stöndum saman!


Greinin birtist fyrst á visir.is 18.03.2020, sjá hér.

Höfundur er ráðgjafi í stefnumótun og sjálfbærni hjá Podium ehf.

15 views0 comments

Comments


bottom of page