Af hverju verða sum fyrirtæki og einstaklingar svona illa úti í fjölmiðlaumræðu? Það er ekki endilega vegna þess að fyrirtækin eða einstaklingarnir séu svona slæmir heldur getur ástæðan oft verið klaufaskapur í samskiptum við fjölmiðla, hroki, undanskot upplýsinga eða almennur skortur á því að koma fyrir sig orði. Þá er vinsælt að tala illa um fjölmiðilinn. Að vísu eru fjölmiðlar mismunandi óvægnir og geta hundelt einstaklinga og fyrirtæki í langan tíma. Samfélagsmiðlarnir ala einnig við sitt brjóst ,,fjölmiðlafólk” eða almenning sem leitast við að fá útrás fyrir neikvæðar tilfinningar og er á stundum líkt og mannasiðir samfélagsdólga séu fengnir úr Cheerioos pakka. Þessum tilfinningaríku samskiptum á samfélagsmiðlum er oft erfitt að svara án þess að það kalli á ennþá meira skítkast.
Sumir telja að almannatengsl séu froða og það fólk sem starfar við að aðstoða einstaklinga og fyrirtæki við að koma boðskap sínum til fjölmiðla er stundum kallað spunalæknar e. Spindoctors. Yfirleitt notað í neikvæðri merkingu og reynt að gera störf þeirra tortryggileg. Þetta er að sjálfsögðu hinn mesti misskilningur, almannatenglar eru oftast nær fólk með mikla reynslu, hefur starfað í fjölmiðlum í langan tíma og eru sérfræðingar í því að búa til fréttir sem ná athygli almennings og miðla þeim til fjölmiðla.
Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref í almannatengslum þá starfaði ég hjá sjálfum meistara almannatengslanna, Jóni Hákoni Magnússyni heitnum, en hann stofnaði fyrsta almannatengslafyrirtækið á Íslandi árið 1986, KOM. Hann var vanur að segja að ef fyrirtæki eða einstaklingar gerðu tilraun til þess að ljúga að fjölmiðlum þá yrði þetta 1% prósent upplýsinga sem reynt var að halda eftir að 99% af fréttinni því sannleikurinn leiti alltaf upp á yfirborðið. Þegar fyrirtæki lenda í áföllum og fjölmiðlar hefja umfjöllun þá skipta fyrstu viðbrögðin miklu máli. Ekki ljúga, segið vondu fréttina strax líkt og að rífa af plástur. Það skiptir miklu máli að vera mannlegur, hroki er óvinur okkar allra og sannleikurinn er sagna bestur. Þessar og margar aðrar reglur er gott að hafa í huga í samskiptum við fjölmiðla. Heiðarleiki er líka dyggð og bæði Róm og traust til fyrirtækja var ekki byggt á einum degi.
Fjölmiðlafólk er að vinna vinnuna sína, flestir bara nokkuð vel. Þeir þurfa því án undantekninga á aðstoð fólks að halda við að miðla réttum upplýsingum til almennings og er þá gott að geta leitað til sérfræðinga. ,,Ég hef ekkert að segja” gerir oft illt verra og þögn undirstrikar sektarkennd. Segðu satt, – almannatengill eða hver sá sem lýgur að fjölmiðlum lifir ekki lengi í starfi. Það gerir aftur á móti sá sem tekst á við erfiðleikana, biðst afsökunar á mistökum og kemur á framfæri hvað hann ætlar að gera til þess að þau endurtaki sig ekki.
Greinin birtist fyrst á visir.is 24. mars 2015, sjá hér.
Comments